mánudagur, 15. desember 2008

Óþarfi að bíða eftir evrunni

Nú er búið að ákveða að aftengja vísitölubætur á búvörusamninga. Úr því að hægt er að aftengja bændur og kvikfénað frá vísitölu getur gjaldmiðillinn okkar ekki lengur verið því til fyrirstöðu að stíga skrefið til fulls og frelsa almenning úr vísitölugapastokknum.


Úr því að krónan dugir sem gjaldmiðill fyrir ríkið til að hætta að borga þegnunum  vístölutryggingu hlýtur að vera óþarfi að bíða eftir því að við tökum upp evru til að losa þegnana við að borga þennan okurskatt.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mjög eðlileg ályktun. Röksemdir gegn frystingu og síðan afnámi vísitölu og verðtryggingar-vágestsins eru ekki samkvæmar innbyrðis

Nafnlaus sagði...

Ætli þetta sé ekki mannréttindabrot, peningaeigendur fá verðtryggingu aðrir ekki? Það er þá sennilega komið í stjórnarskrána að sumir séu jafnari en aðrir!

Ragnar Eiríksson

Nafnlaus sagði...

mæli með að bændur komi með haugsugurnar í bæinn á laugardag

skuldari sagði...

Bændur. Velkomnir í mótmælin. Það eru mótmæli útum allt. Alltaf pláss fyrir gott fólk.

Nafnlaus sagði...

Heyr Heyr. Vakti athygli á þessu á Facebook hópnum Hætta að borga?

Kíkið líka á www.heimilin.is

Nafnlaus sagði...

Afskaplega er nú ljóst, að þú ert mjög, já mjög seinþroska, að láta þér detta þvílíkt í hug, að eitt skuli yfir alla ganga hér í okkar frjálsa hagkerfi.

Að Jón sé á pari við séra Jón burgeis!!

Þetta stappar nær óráði og refsiverðu hjali.

Nafnlausi