

Í Viðskiptablaðinu stendur að meirihluti Dana sé tilbúinn að fórna dönsku krónunni og taka upp evru "samkvæmt nýrri viðhorfskönnun sem Greens Analyseinstiut vann fyrir danska viðskiptablaðið Børsen."
Ef þetta gengur eftir er ástæða fyrir Seðlabanka Íslands að vera velvakandi, því að um leið og Danir taka upp evru má fá dönsku krónuna fyrir lítið. Með þessu móti væri hægt að skipta hér snögglega um gjaldmiðil og klekkja um leið á hinum "óprúttnu" aðilum sem eru að fíflast í gengi íslensku krónunnar til að skaprauna Seðlabankastjóranum íslenska.
föstudagur, 4. apríl 2008
Danskar krónur ókeypis á næstunni
Framfarir í ferðamálum stjórnmálamanna
Um "reffilega" einkaþotu (af visir.is)
"Reffileg einkaþota lenti á Reykjavíkurflugvelli um sexleytið í dag með þau Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og föruneyti þeirra um borð. Leiðtogafundi NATO lauk í dag og að honum loknum hélt hópurinn fríði beint heim til Íslands, með stuttri viðkomu í Noregi...
Hefð er fyrir því að viðskiptajöfrar á borð við Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfsfeðga og Hannes Smárason ferðist með einkaþotum, en það þykir víst nýmæli að ráðherrar ferðist með þessum hætti á kostnað skattgreiðenda."
Þessi frétt birtist á visir.is. Bæði fyrir blaðamenn og skattgreiðendur er full ástæða til að lesa síðustu setninguna tvisvar: "...en það þykir víst nýmæli að ráðherrar ferðist með þessum hætti á kostnað skattgreiðenda."
Sacha Cohen í stað John Cleese?
Göng til Vestmannaeyja?
Dularfullur þjófnaður á steypurörum - lögregla gáttuð
Fréttablaðið segir í dag frá dularfullum þjófnaði á steypumótum frá Grandagarði, en
verktakinn, Hannes Þór Baldursson, sem ætlaði að nota rörin segir þjófana þurft að fara tvær ferðir á vörubíl með þýfið.
Helst dettur manni í að einkaaðilar hafi í huga að nota rörin til að gera tveggja akreina "skriðgöng" til Vestmannaeyja.
Skipulag Reykjavíkur - til allra er málið varðar
Að klóra Albaníu á bakinu
Framboð til Öryggisráðs SÞ: Albanía heitir Íslandi atkvæði
"Þið eigið okkar stuðning vísan," svaraði Lulzim Basha, utanríkisráðherra Albaníu, spurningu Fréttablaðsins um afstöðu albanskra stjórnvalda til framboðs Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna."
Ef maður klórar Albaníu á bakinu kýs Albanía mann í öryggisráðið.
Ólympíuleikarnir eru fyrir íþróttamenn - ekki pólitíska fanga
Geir H. Haarde um ÓL í Kína: Leikarnir snúast ekki um pólitík
Íslensk stjórnvöld hafa ekki ákveðið hvort þau sniðgangi Ólympíuleikana í Kína. Angela Merkel Þýskalandskanslari og fleiri þjóðarleiðtogar ætla ekki að sækja leikana í mótmælaskyni við ástand mannréttindamála í Kína.
Mér finnst ekki tímabært að kveða upp úr um það," svaraði Geir Fréttablaðinu í gær. Ólympíuleikarnir snúast ekki um pólitík."
Þetta er þörf ábending frá forsætisráðherra okkar, því að á Ólympíuleikum er keppt í fjölmörgum íþróttagreinum og allir kínverskir íþróttamenn sem ekki sitja í fangelsum af pólitískum ástæðum fá að taka þátt, hafi þeir náð tilskyldu lágmarki í sinni keppnisgrein.
Drap hann mann eða rithöfund?
Frægur útgefandi viðurkennir í viðtali að hafa drepið mann
Furðulegt mál er komið upp í bresku pressunni.
Felix Dennis, milljarðamæringur og útgefandi hins vinsæla karlatímarits Maxim og fleiri tímarita, viðurkenndi í viðtali sem birtist í miðvikudagsútgáfu The Times að hafa eitt sinn drepið mann.
Hér mun hafa verið um rithöfund að ræða og er talið ólíklegt að mikið veður verði gert út af þessu leiðindaatviki.
Spilling í erlendum háskóla
Prófessor dæmdur fyrir mútur og spillingu
Dómstóll í Þýskalandi dæmdi í dag lagaprófessor í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa gefið nemendum sínum betri einkunnir í skiptum fyrir peninga og kynlíf.
Prófessorinn, sem er 53 ára og býr í Hanover, viðurkenndi að hafa þegið alls um 156 þúsund evrur fyrir að hleypa nemendum sem fallið höfðu á prófum í gegn um kúrsinn sinn.
Áður en dómurinn var kveðinn upp sagði prófesorinn að hann hefði ekki átt fyrir skuldum og því hefði hann leiðst út þessa iðju.
Mikið er gott að svona lagað skuli ekki geta komið fyrir á Íslandi.
fimmtudagur, 3. apríl 2008
Núna vill Bíbí lög til að refsa fyrir hluti sem ekki hafa gerst...
Nei, Hannes, við þurfum ekki "smá málfrelsi"
"Hvernig er það, eigum við ekki að leyfa smá málfrelsi að blakta eins og kerti?"
Nei, aldeilis ekki.
Við skulum varðveita málfrelsið eins og kyndil sem kveikir þann varðeld sem ornar þjóðinni og heldur draugum og ófreskjum næturinnar í hæfilegri fjarlægð. Við skulum kenna dómstólum þjóðarinnar að málfrelsi er bjartur, logandi og eilífur eldur - ekki skíma frá vasalugt eða kertisstubbi.
Við skulum virða skoðanir hvers annars, hafa vísindaleg vinnubrögð í heiðri ef við viljum vera vísindamenn og forðast sérgæsku og ófyrirleitni. Og umfram allt hroka, valdagræðgi, nepotisma, sleggjudóma, mont og oflæti.
Fyrir rithöfunda, blaðamenn og þjóðina er ekki nóg að smá málfrelsi blakti eins og á skari.
Við vinnum verk okkar með þjóðarhag að leiðarljósi og erum laus við þá freistingu sem launakerfispunktar háskólans reynast þeim sem eiga erfitt með að standast freistingar.
Stöndum vörð um málfrelsi. Leyfum skímunni á kertisstubbum ritþjófanna að brenna út, sú skíma er villuljós, þeirra sem kjósa að starfa þar sem dimman ríkir.
Rúmenar opna nýja vídd í samskiptum þjóða - stinga upp á að þjóðir hafi landaskipti
Ætlaði að ræna Íslendinga heiðrinum
Erlendur svikahrappur
Hugh Hendry, yfirmaður fjárfestingasviðs hjá breska vogunarsjóðsfyrirtækinu Eclectica Asset Management, einn fjárfestanna sem hagnast hafa á veikingu íslensku krónunnar, stærði sig af því árið 2006 að hann vildi láta minnast sín sem mannsins sem gerði Ísland gjaldþrota, segir í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag. Hendry sagði þetta m.a. í viðtali við breska blaðið Times 8. júlí 2006: "I want to be known as the man who bankrupted Iceland."
Nú er komið í ljós að Hendry þessi á við athyglisfíkn að stríða og allt tal hans um að gera Ísland gjaldþrota eru órar taugabilaðs manns. Hann segist líka hafa skrifað bækur Laxness, málað myndir Kjarvals og hafa stofnað Kolkrabbann.
Enginn einn maður getur eignað sér heiðurinn af því að setja landið á hausinn, en þó er gott til þess að vita að afrekið var unnið af íslenskum afreksmönnum en ekki útlendingum.
Háskóli Íslands endurskilgreinir vísindi - vekur alheims athygli
Rektor Háskóla Íslands átelur vinnubrögð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði og gerir þá kröfu að þau verði ekki endurtekin.
Í tilkynningu frá háskólanum segir að nýfallinn dómur í Hæstarétti sé staðfesting þess að Hannes Hólmsteinn hafi sýnt af sér óvandvirkni í starfi sem teljist ósæmileg og samrýmist ekki kröfum Háskóla Íslands.
Þessi málalok eru óneitanlega framúrstefnuleg og þurrka í rauninni út allar takmarkanir fyrir því hvað geti talist vísindi.
Auðvitað eru vísindi og vísindaleg vinnubrögð stöðugt skilgreind upp á nýtt, þótt skilgreining á heiðarleika hafi staðið óbreytt nokkuð lengi.
Þessi djarflega ákvörðun bendir til þess að Háskóli Íslands ætli sér að ná því takmarki að verða einn af hundrað bestu háskólum heims með öllum tiltækum ráðum. Alla vega einn af þeim sem mest verður hlegið að.
Til tals hefur komið að færa Hannes milli háskóladeilda og láta hann kenna nýnemum "How to survive in a corrupt world" í félagsfræðideild í staðinn fyrir "I and the people I know" í stjórnmálafræði.
Gangandi Makedónar spara þotuleigu
Makedónar gengu af NATO-fundi
Sendinefnd Makedóníu gekk af leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í dag eftir að aðildarríki neituðu að bjóða Makedóníumönnum aðild að bandalaginu vegna óútkljáðrar nafnadeilu þeirra og Grikkja.
Svo heppilega vildi þó til að ekki þurfti að kaupa einkaþotu undir Makedónana. Það var stutt fyrir þá að fara svo að þeir gátu gengið heim af fundinum.
Háskóli með svartan blett á tungunni
Segir Hannes hafa logið að þjóðinni
Ef nemendur eru reknir fyrir að stela úr verkum annarra og gera þau að sínum þá hlýtur það sama að ganga yfir kennara..."
Að þessu spyr Guðný Halldórsdóttir sem ásamt fleirum undrast aðgerðaleysi Háskóla Íslands í máli hins nýdæmda prófessors Hannesar Hólmsteins.
Þetta er flókin spurning sem Háskóli Íslands mun eiga í erfiðleikum með að svara, því að þótt allir séu jafnir eru sumir jafnari en aðrir.
Alvöruháskóli
Deildarforseti háskóla í Durham rekinn fyrir ritstuld
Tony Antoniou deildarforseti við Viðskiptaháskólann í Durham á Bretlandi hefur verið rekinn fyrir ritstuld. Tony tók veigarmikla kafla sem hann notaði orðrétt í blaðagrein og doktorsritgerð sína.
Antoniou vék fyrst sem deildarforseti í september þegar ásakanirnar komu fram. Hann var síðan rekinn frá háskólanum á meðan rannsókn fór fram á ritstuldinum og var síðan sviptur doktorsgráðunni frá York háskólanum sem hafði veitt honum verðlaun fyrir ritgerðina árið 1986.
Það vekur athygli að þrátt fyrir þessar harkalegu aðgerðir hefur ekki verið gripið til fjársöfnunar til að styrkja prófessorinn með verðlaunafé - enda hefur hann ekki hlotið dóm í hæstarétti.
Að hjálpa ógæfumönnum að bandarískri fyrirmynd

Að hjálpa ógæfumönnum
O.J. Simpson morðinginn sem kunningi dómsmálaráðherrans okkar fékk sýknaðan af ákærum af að hafa drepið eiginkonu sína og mann sem var staddur í húsi hennar.
Litlu síðar, 5. feb. 1997, var svo Simpson sakfelldur í einkamáli fyrir að hafa valdið dauða Nicole Brown og Ronald Goldman. Hann var dæmdur til að greiða erfingjum hinna myrtu 33 og hálfa milljón dala í skaðabætur.
Illa hefur gengið að rukka inn skuldina. Simpson skrifaði þó í fjáröflunarskyni bókina: "If I Did It: Confessions of the Killer" í samvinnu við mann sem var skrifandi og kunni á gæsalappir og allt það.
Ónefndur velgjörðamaður greiddi lögfræðikostnað Simpsons. Þeir bandaríkjamenn sem hafa samúð með O.J. Simpson og vorkenna honum að þurfa að borga skuldir sínar hafa stofnað styrktarsjóð honum til stuðnings.
Svona styrktarsjóðir eru ekki einsdæmi eins og sjá má af því að nú hefur verið stofnaður sjóður á Íslandi til að hjálpa prófessor Hannesi Hólmsteini til að gera upp sektir sem á hann hafa verið dæmdar.
Seðlabankinn: "The More, The Merrier"

Næsti aðstoðarmaður Davíðs
Örn Úlfar Sævarsson hefur sett fram athyglisverða hugmynd:
"Mugabe í Svörtuloft?
Mugabe hefur í fyrsta skipti viðurkennt ósigur í forsetakosningum í Simbabve. Heyrst hefur að sinniskiptin séu vegna þess að hann hafi fengið atvinnutilboð frá ónefndum Seðlabanka."
Þetta hefur ekki fengist staðfest en mannauðsstjóri ríkisstjórnarinnar hafði þetta um málið að segja:
"The more, the merrier"
Síðasti aðstoðarmaður Davíðs, Illugi Gunnarsson, er nú kominn á þing fyrir Flokkinn.
Geir Haarde: Með nagla í höfðinu?
Naglar valda pirringi og höfuðverk


Einn af okkar bestu blaðamönnum, rithöfundum, sjónvarpsmönnum og ljóðskáldum, Sigmundur Ernir - Súper-Örninn - hittir forsætisráðherranaglann beint á höfuðið í grein sinni á visir.is.
Hann segir: "Ég sé ekkert athugavert við það að ráðpamenn leyti allra leiða til að komast sem ódýrast á milli staða. Og ef það er rétt, sem Geir H. Haarde, heldur fram að kostnaður við einkaþotuna hafi verið svo naumlega umfram aðrar vélar að tímasparnaðurinn vegi það upp, ja ... þá sé ég ekki stóraglæpinn. Munurinn á kostnaði mun vera 100 til 200 þúsund krónur, einkaþotunni í óvil.
Hitt vekur mig til umhugsunar; viðbrögð Geirs H. Haarde við umræðufárinu um þessa blessaða einkaþotu. Hann segir hana "lýsandi fyrir stjórnmálaumræðuna" eins og Moggi hefur eftir honum. Geir er nokkuð pirraður.
Hann á að vera yfir það hafinn.
Það skal alltaf vera hlutverk fjölmiðla að veita ráðamönnum aðhald. Ráðamenn eiga sjálfir að sækjast eftir þessu aðhaldi í upplýstu lýðræðissamfélagi. Fjölmiðlar eiga að leita svara í þessu efni sem öðru þegar ráðamenn eru að eyða peningunum okkar eða semja um okkur lög sem við eigum að gjöra svo vel að fara eftir."
Undir þetta vil ég taka með Sigmundi Erni:Blaðamenn eiga að spyrja. Blaðamenn eiga að hitta naglana, stóra og litla, beint á höfuðið. Og forsætisráðherrar og aðrir naglar eiga ekki að vera pirraðir þótt þeir fái nagla í höfuðið.
Tvíhliða fundir um tvíhliða mál

Tvíhliða fundir í tísku í utanríkismálum
Á visir.is stendur:
Ingibjörg Sólrún hittir Rice í Washington
Guðjón Helgason í Búkarest skrifar:
"Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, mun eiga tvíhliða fund í Washington með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna þann 11. apríl næstkomandi.
Viðræður á grundvelli varnarsamkomulags Íslands og Bandaríkjanna munu fara fram á þeim fundi auk þess sem önnur tvíhliða mál ríkjanna verða rædd.
Einnig munu untanríkisráðherrarnir ræða samstarf kvenna í þeirri stétt. Þær Ingibjörg Sólrún og Rice kynntust einmitt á samstarfsvettvangi kvennutanríkisráðherra."
Væntanlega af öryggisástæðum er ekki nánar útskýrt um hvaða tvíhliða mál verða rætt á fundi Condoleezu og Ingibjargar né heldur hvers vegna ákveðið hefur verið að hafa fundinn tvíhliða að því er virðist nema hvað varðar tvíhliða kynni þeirra á "samstarfsvettvangi kvenutanríkisráðherra.
Því ber að fagna að tvíhliða mál Íslands og Bandaríkjanna skuli aðeins hafa tvær hliðar þannig að hægt skuli að leysa þau með tvíhliða viðræðum á tvíhliða fundi. Leitað er nú að "góðu díl" til að finna ódýra en rúmgóða tvíhliða einkaþotu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu.
Tvíhliða þotur, þar með taldar tvíhliða einkaþotur, eru nú á þróunarstigi og er þeim einkum ætlað að rannsaka hvort svonefnd svarthol og svo að sjálfsögðu önnur mál í geimnum eru einhliða, tvíhliða, þríhliða eða marghliða.
Sjá nánar meðfylgjandi mynd af grein úr tvíhliða vísindaritinu ASTRONOMY AND ASTROPHYSICS sem birtist með þessari frétt. Að sjálfsögðu þarf að tvísmella á greinina.
(Washington er spölkorn frá Búkarest svo að þetta er heilmikið ferðalag).
Bling-bling!

miðvikudagur, 2. apríl 2008
Þráinn: Bíbí ruglar saman sýknudómi og sakleysi og sektardómi og réttlæti en þekkir samt sundur sokka og hanska


Dómsmálaráðherrann skrifar á bloggið sitt:
"Glæpasagnahöfundurinn Þráinn Bertelsson ræðir um O. J. Simpson málið í tilefni af dagbókarfærslu minni hér í gær. Þráinn er ekki betur að sér en svo, að hann ruglar saman hanska og sokki, þegar hann ræðir um sönnunargagnið, sem leiddi til sýknu Simpsons. Alan M. Dershowitz, verjanda hans tókst að sýna kviðdóminum, að lögreglan hafði falsað „sönnunargagn“ með því að láta blóð leka í sokk. Á því féll málatilbúnaður ákæruvaldsins."
Ég svara:
Ég kom ekki nærri því að sýkna O. J. Simpson, enda er ég hvorki lögfræðingur né áhugamaður um trix til að fá morðingja sýknaða fyrir dómstólum. Það var kunningi þinn, Alan M. Dershowitz verjandi Simpsons sem tók "sokka og hanskasnúninginn" á dómaranum og vesalingur minn kom þar hvergi nærri.
Að bendla mig við að misskilja þessa lögfræðilegu fínessu sem þér finnst svo athyglisverð er fremur dapurlegur útúrsnúningur af þinni hálfu - samkvæmt þeirri lógík sem er að verða kækur þinn; að gera andstæðingum þínum upp skoðanir og útmála síðan hvað þær séu vitlausar.
Sumum þykja svona vinnubrögð aðdáunarverð. Mér ekki. Samt vil ég frekar sjá sekan mann ganga lausan en saklausan mann dómfelldan.
Hér á Íslandi var framið hryllilegt dómsmorð sem kallað er Geirfinns-málið, eða mál 214 (minnir mig), þar sem sakborningar voru meðhöndlaðir eins og gerðist á tímum Rannsóknarréttarins. Engin lík hafa fundist. Engin morðástæða hefur fundist. Ekkert hefur fundist sem tengir sakborninga í Geirfinnsmálinu við morð - nema játningar sem fengnar voru með einangrun og pyntingum og voru að sjálfsögðu dregnar til baka. Samt var þetta fólk dæmt.
Ágæti dómsmálaráðherra, vera kann að við séum ósammála um marga hluti, en ég vona að þú sért mér sammála um að Geirfinnsmálið sé ljótur blettur á íslenska dómskerfinu, og það þurfi að taka upp málið aftur og komast að nútímalegri niðurstöðu.
Þetta verður örugglega einhvern tímann gert, og ég vona og trúi reyndar að þú búir yfir réttlætiskennd og mannúð sem nægir til að sjá til þess að þetta verði gert meðan ennþá þetta forsmáða og ærulausa fólk er enn ofar moldu. Breiðavíkurmálið er ljótt mál og nokkur hugsvölun að yfirvöld virðast vilja viðurkenna mistök og bæta fyrir þau. Geirfinns-málið er hræðilega ljótt.
Það skiptir meira máli en einhverjar lögfræðilegar hártoganir og Heimdallarútúrsnúningar um sokkaplögg og hanska ógæfumannsins O. J. Simpson. Ég trúi að þú sért - þrátt fyrir margvíslegan skoðanaágreining - innst inni drengur góður. Og tími til kominn að leyfa þeim fallegu eiginleikum þínum að njóta sín líka meðan þú gegnir þessu embætti.
Ferðin gengur vel: Geir og Sóla fengu kjúkling
Þar segir:
"Þess má geta að flugferðin með einkaþotunni gekk vel í dag. Lagt var af stað snemma í morgun og flogið áleiðis til Stavanger í Noregi. Á leiðinni þangað var flugfarþegum boðið upp á ommelettu í morgunmat. Í Stavanger var stoppað í hálftíma á meðan vélin var fyllt af eldsneyti. Svo var haldið til Búkarest en á leiðinni þangað var Geir, Ingibjörgu og föruneyti þeirra boðið upp á kjúkling."
Þessi fábrotnu en hollu matvæli sýna að ríkisstjórnin vill ganga á undan í sparnaði á þessum síðustu og verstu tímum, því að Beluga-kavíar, Moet & Chandon-kampavín og Kobe-nautasteik hefur ekki verið innifalin í hinu lága verði.
Visir.is segir ennfremur: "Forsætisráðuneytið var búið að bóka áætlunarflug til Búkarest með viðkomu í London í eina nótt áður en ákvörðun var tekin um að fljúga frekar á Nato fundinn með einkaþotu.
Að sögn Grétu Ingþórsdóttur, aðstoðarkonu Geirs Haarde, var ákveðið að taka síðari kostinn þegar í ljós kom að kostnaðurinn væri aðeins 100 til 300 þúsund krónum meiri.
Að sögn Grétu fékk forsætisráðuneytið "mjög góðan díl" hjá fyrirtækinu sem leigði út einkaþotuna. Hún vill þó ekki gefa upp nákvæman kostnað."
Bíbí í toppfélagsskap

Það er yndislegt að fylgjast með því sem dómsmálaráðherra bloggar og deilir með okkur af lífi sínu og störfum.
Í bloggi sínu dagsett 1. apríl segir dómsmálaráðherra m.a.:
"Hitti Alan M. Dershowitz, lagarprófessor við Harvard, sem hér er á fyrirlestraferð. Hann er ekki aðeins þekktur sem prófessor og höfundur margra bóka, heldur einnig sem verjandi, t.d. O. J. Simpsons."
Hvernig var það nú aftur? Þessi Simpson var sýknaður með miklum lagakrókum af því að hafa drepið fjölskyldu sína eða alla vega konuna sína. Aðalsönnunargagnið í málinu var blóðugur hanski sem verjendur Simpsons fengu dómarann til að úrskurða að kæmi ekki málinu við.
Nema hvað, þess vegna segja grínarar að O.J. Simpson hafi spurt verjanda sinn, Alan M. Dershowitz:
"Not guilty? Þýðir það að ég geti geti fengið hanskana mína aftur?"
Svarið var: "Nei, það þýðir að þú hefur verið heppinn með verjendur."
Gæðingurinn vakri Jónas!

Reynir Traustason segir að Jónas Kristjánsson sé brokkgengur gæðingur.
Allavega tekur Jónas snarpan skeiðsprett á bloggi sínu í dag:
Ranglátu stimpilgjöldin
Svona texti flokkast ekki undir brokk - heldur er þetta hinn fegursti skeiðsprettur.
Utanríkisráðherra á þreföldum hljóðhraða
Handvömm að ráðherra fundaði ekki með nefnd fyrir Búkarestferð
Handvömm eða óprúttnir aðilar virðast hafa ráðið því að utanríkisráðherra fundaði ekki með utanríkismálanefnd Alþingis áður en hún hélt á leiðtogafund Atlantshafsbandlagsins í Búkarest í dag. Þetta sagði Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar á Alþingi.
Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstri - grænna í nefndinni, kvaddi sér hljóðs á þingfundi og benti á að hann hefði á mánudag óskað eftir fundi í nefndinni með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra áður en hún færi til Búkarest.
Nú er verið að prútta við bandarísk yfirvöld um hversu mikið myndi kosta að leigja hraðfleygustu þotu heimsins Lockheed SR-71 Blackbird, þannig að hægt væri að senda tvo til þrjá sérsveitarmenn til Búkarest eftir utanríkisráðherra.Þannig gæti ráðherrann fundað með utanríkismálanefnd á Loftleiðahótelinu meðan Blackbird-þotan biði fyrir utan - og verið komin aftur til Búkarest í tæka tíð fyrir fundinn.
Farkostur utanríkisráðherra og föruneytis er lítil og ódýr einkaþota af gerðinni Dornier 328 sem nær aðeins um 360 mílna flughraða á klukkustund. Mikill tími og þar af leiðandi peningar myndu sparast ef íslenskir ráðamenn ferðuðust með Blackbird sem nær rúmlega þreföldum hljóðhraða eða MACH 3.2.
Tími til að hugsa?
Sú saga er sögð um Ernest Rutherford (1871-1937). Hann var frá
Nýjasjálandi og var eðlisfræðingur. Eitt sinn hafði Rutherford nemanda
sem var óvenju vinnusamur.
Rutherford veitti þessu athygli og spurði:
- Vinnurðu fram eftir á kvöldin?
- Meðan ég get haldið augunum opnum, sagði nemandinn.
- Og þú ert mættur hér eldsnemma á morgnana?
- Við fyrsta hanagal, sagði sá námfúsi.
- En hvenær hefurðu tíma til að hugsa? spurði Rutherford furðu lostinn.
þriðjudagur, 1. apríl 2008
Margrét Frímannsdóttir þekkir taktana
Óttast ekki klíkustríð á Litla-Hrauni
segir Margrét Frímannsdóttir
„Það er auðvitað kunningskapur á milli manna sem kannski koma inn og hafa lengi verið saman í afbrotum. En það er ekki þannig að hér séu einhver gengi," segir Margrét Frímannsdóttir, fyrrum alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar.
Margrét lét af þingmennsku fyrir nokkru og mun hér að vera að tjá sig um fangelsið að Litla-Hrauni en ekki sinn fyrri vinnustað.
Góða ferð - og góða heimkomu!
"Það er kannski ekki stæll á því að fara á hausinn
en það er samt hægt að fara á hausinn með stæl." Þ.B.
"Living in the lap of luxury isn't bad, except that you never know when luxury is going to stand up”
Orson Welles
“Power does not corrupt. Fear corrupts...
perhaps the fear of a loss of power.” John Steinbeck
“It is said that power corrupts, but actually it's more true
that power attracts the corruptible.
The sane are usually attracted by other things than power.”
David Brin
Össur enn í næturvinnu!


Dr. Össur Skarphéðinsson hefur nú ekki sést á næturbloggi sínu um nokkurt skeið. Óvildarmenn hans töldu að forsætisráðherra hefði svipt ráðherrann tjáningarfrelsi nema milli kl. 9 og 17 á virkum dögum.
Ekkert var þó fjar lagi. Í tómstundum sínum hefur dr. Össur nú hannað einkaþotu sem er hæfilega stór til að bera ríkisstjórnina, aðstoðarmenn hennar sem vinna verkin, og sérvalinn hóp blaðamanna sem misskilur allt og leggur út á versta veg.
Einkaþota íslensku ríkisstjórnarinnar verður smíðuð í Chile þegar búið er að klambra saman varðskipinu handa Bíbí - og hefur hún þann kost með sér að hún er eingöngu knúin jarðhita.
Talið er að markaður sé mikill utan Arabalandanna fyrir farartæki af þessu tagi og útrásarmöguleikar gífurlegir.
Óprúttnir aðilar koma í ljós á skyggnilýsingafundi
Á skyggnilýsingafundi sem haldinn var á einkaheimili hérna í borginni í fyrrinótt gáfu þrír sérlega óprúttnir aðilar sig í ljós og hældust um af illverkum sínum. Þá gaf sig í ljós í salnum Séra dr. Griziodeck sem kostaður hafði verið hingað af gjaldeyrisvarasjóði Seðlabankans.
Séra Griziodeck er heimsfrægur draugabani eða exorsisti. Slumaði þá í hinum óprúttnu aðilum og þeir hurfu í reykjarskýi og skildu eftir sig brennisteinfnyk í salnum.
Séra Griziodeck kvaðst hafa borið kennsl á tvo þessara aðila og nefndi Kölska og ömmu hans, en hún var í hjólastól. Þriðja aðilann hafði draugabaninn ekki séð áður en hann var með baug á hverjum fingri.
Ljósmyndurum var mjög brugðið við þessa uppákomnu og náðust engar ljósmyndir fyrr en hinir óprúttnu ærsladraugar voru horfnir. Óprúttna konan, sem séra Griziodeck, telur að sé amma Kölska, skildi þó hljólastól sinn eftir.
Hæstaréttardómara og litlum frænda sem var þarna staddur sýndust þeir sjá þarna persónur sem svipaði til persóna úr hinni mögnuðu kvikmynd "Myrkrahöfðinginn" sem Davíð hefur mikið dálæti á. Draugabaninn hefur horft á valdar senur úr Myrkrahöfðingjanum í dag, og segir "baugamanninn" á skyggnilýsingafundinum líkjast helst biskupnum í myndinni. Þessu tvennu er erfitt að koma heim og saman.
Tæknideild Lögreglunnar og særingadeild Þjóðkirkjunnar hafa rannsakað stólinn í allan dag en hvorki fundið DNA eða fingraför, hvorki á stólnum né á eintaki af Séð og heyrt sem lá eftir í stólnum.
Sparnaðarfarkostur ráðuneytanna
Flugvélin, sem er af gerðinni Dornier 328 er leigð af íslenska fyrirtækinu Icejet í þessa sparnaðarför.
Fyrsta vélin af þessari gerð fór í reynsluflug 6. des. árið 1991; 83 svona vélar voru smíðaðar svo að soldil reynsla er komið á flughæfni vélarinnar.
Gréta vildi ekki gefa upp kostnaðinn við flugið. Og þaðan af síður sparnaðinn við að leigja einkaþotuna, enda gæti það haft þær afleiðingar að allir færu að leigja einkaþotur og hefðbundið áætlunarflug legðist af. Aðeins tvær vélar svipaðri þessari hafa farist á síðustu árum.
Fjórtán manns fara í ferðina, tíu frá ráðuneytunum og fjórir blaðamenn.
Pláss er fyrir fjórtán manns á fyrsta farrými véla af þessari gerð – en þá er yfirleitt ekki gert ráð fyrir blaðamönnum í þeim hópi heldur annars konar farþegum.
Þetta er lýsandi dæmi um að það þarf ekki að kosta mikla peninga að skemmta sér.
Sultarólin hert - flogið með einkaþotu
Geir og Ingibjörg Sólrún með ÓTRÚLEGA ÓDÝRRI einkaþotu á NATO-fund
Íslenska sendinefndin sem fer á leiðtogafund NATO í Búkarest á morgun mun ferðast með einkaþotu til Rúmeníu frá Íslandi. Aðstoðarkona forsætisráðherra segir kostnaðarmuninn á ferðinni miðað við áætlunarflug óverulegan.
Með vélinni fara þau Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra auk fylgdarliðs og blaðamanna.
Ekki liggja fyrir nákvæmir útreikningar á því hvað Air Rumenskí býður betur en Sterling, Easy Jet og Iceland Express.
En græddur er geymdur eyrir. Og það er ánægjulegt þegar íslenskir stjórnmálamenn hafa komist upp á lag með að ná niður ferðakostnaði sínum með því að leigja einkaþotur.
Þess má geta að þátttakendur í ferðinni taka með sér smurt að heiman.
Eldsneytislækkun fyrir leikfangabíla - um leigubíla gilda önnur lögmál
Bílstjórar mótmæla eldsneytisverði
Leigubílstjórar, ásamt sendibílstjórum og ferðaklúbbnum 4x4, efna til mótmæla í dag, gegn háu eldsneytisverði, þegar þeir aka bílum sínum frá Klettagörðum að Austurvelli.
Meirihluti er fyrir því í ríkisstjórn að þeir sem eiga stóra leikfangabíla sér til skemmtunar fái afslátt á eldsneytisverði svo að þeir geti haldið áfram að njóta lífsins með konum sínum og börnum.
Hinir sem sem hafa valið sér það hlutskipti í lífinu að aka stórum bílum í atvinnuskyni geta hækkað taxtann samkvæmt markaðslögmálum.
Tilkynning frá ríkisstjórn Íslands
Í tilefni af því að okkur hefur loksins tekist að "semja um starfslok" við Davíð Oddsson seðlabankastjóra verða nokkrar bráðabirgðabreytingar á verslunarháttum þjóðarinnar næstu daga.
1. Íslenska krónan er ekki lengur gjaldmiðill heldur hlutabréf í óstofnuðu fyrirtæki sem á að heita Ísland Ohf.
2. Öll verslun fer fram með vöruskiptum.
3. Vextir eru ekki aðeins lagðir niður heldur bannaðir.
4. Verðtrygging verður afnumin svo og bæði stimplar og stimpilgjöld.
5. Seðlabankinn verður endurrreistur þegar fundist hefur Almannatengslafyrirtæki sem getur endurreist hann. Annars verður byggingin notuð sem félagsmiðstöð fyrir ungmenni í 101.
6. Við skorum á forstöðumenn trúfélaga að biðja fyrir íslensku þjóðinni og Davíð Oddssyni sérstaklega.
7. Sala áfengis verður bönnuð um óákveðinn tíma.
8. Þeir sem eiga afgangs flugelda í fórum sínum hafa þó leyfi til að fagna þessum ákvörðunum.
Stjórnin
Davíð hættur í Seðlabankanum

Höggmyndin: Davíð og Íslandsklukkan
Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur sagt starfi sínu lausi frá deginum í dag að telja.
Á morgun tekur hann við nýju starfi sem forstjóri Osta- og Smjörsölunnar."
"Ég hef að vísu ekki hundsvit á osta- eða mjólkurframleiðslu," sagði Davíð í viðtali við fjölmiðla. "En ég bý til nokkuð góðar smjörklípur."
Hér er höggmynd úr smjöri sem Seðlabankinn og "sponsorar hans" fólu hinum heimsfræga Ólafi Nerdrumsen að gera af Davíð í þakkarskyni fyrir "störf" hans.
Pólitísk yfirlýsing
Gore funheitur í leitinni að "weapons of mass destruction"
Gore gistir í snekkju Saddams á Íslandi
Nóbelsverðlaunahafinn Al Gore mun gista á snekkju Saddams Hussein á meðan hann dvelur á Íslandi í næstu viku.
Nú er verið að búa um rúmin í ferjunni, en síðan munu íslenskir friðargæsluliðar kallaðir heim til að leita að "gereyðingarvopnum" eða "weapons of mass distruction" um borð, því að eins og allir vita hafði Saddam sálugi það fyrir sið að skilja slík vopn aldrei við sig.
Nýjar Efnahagsaðgerðir : Aðstoðarmenn ráðnir
Nýjar efnahagsráðgerðir munu vera í burðarliðnum hjá ríkisstjórninni sem verst allra frétta þótt hún viðurkenni að hafa heyrt minnst á orðið "kreppu" oftar en einu sinni á undanförnum dögum.
Eftir því sem heimildarmenn Eyjunnar komast næst verður öllum sem geta sýnt frá á meira en milljón króna tekjur á mánuði (e. skatt) nú heimilt að ráða sér aðstoðarmenn og konur og mun ríkið borga launakostnaðinn.
Þessi efnahagsaðgerð kemur réttlátlega niður. Þeir sem eiga peninga fá nauðsynlega aðstoð. Þeir sem eru atvinnulausir fá nauðsynlega vinnu.
Gert er ráð fyrir að um 5000 aðstoðarmenn verði ráðnir á næstu dögum. Umsækjendur um aðstoðarmannastörf þurfa að framvísa flokksskírteinum frá viðurkenndum stjórnmálaflokkum eða erfðamengi sínu og forfeðratali frá DeCode.
Ný tæki við lögreglurannsóknir
"Meirihluti telur refsingar of vægar
Mikill meirihluti fólks telur að afbrot séu mikið vandamál hér á landi, að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúls Gallup. Þannig telja 72% aðspurðra afbrot mikið vandamál, 16% að þau séu lítið vandamál hér á landi og 12% taka ekki afstöðu."
Dómsmálaráðherra, Ríkislögreglustjóri, sérsveitarmenn, margvíslegir eftirlitsmenn og fulltrúar öryggisdeildar lögreglunnar og pólitískt skipaðir dómarar hjá hæstarétti og héraðsdómi íhuga nú hópferð á sýninguna "Refreshing Torture For Modern Times" sem haldin verður í sumar í húsakynnum sem áður tilheyrðu Spænska rannsóknarréttindum.
Einnig verða á sýningunni margar skemmtilegar gerðir þvagleggja, piparúða, hnúajárna og auk þess gaddakylfur sem hafa gefist vel við að smala fólki heim á nóttunni.
Reynt verður að koma tækjunum í gagnið áður en lokadómur verður kveðinn upp í svonefndu Baugsmáli.
Allt sokkið til botns - leyndó í undirbúningi
mánudagur, 31. mars, 2008 - 16:53
Geir: Botni vonandi náð - “margt athyglisvert í undirbúningi”
"Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði ánægjulegt að krónan hefði styrkst nokkuð myndarlega og hlutabréfamarkaður sömuleiðis á fyrsta viðskiptadegi eftir ársfund Seðlabankans og sagði hann það benda til þess að botninum í falli krónunnar og gengja hlutabréfa sé náð.
Hann sagði einnig að ríkisstjórnin og Seðlabankinn væru með “margt athyglisvert í gangi og í undirbúningi” sem ekki væri hægt að segja frá strax." Ligga, ligga, lá! Nanana búbú!
Dagpeningatúrar í 16 mánuði eftir hjá Samfylkingu
Innlent | mbl.is | 31.3.2008 | 19:31
Litlar breytingar á fylgi flokkanna
“Litlar breytingar eru á fylgi flokkanna í nýjum Þjóðarpúls Gallup, sem sagt var frá í fréttum Útvarpsins. Fylgi Sjálfstæðisflokkurinn mælist 37% en fylgi Samfylkingarinnar mælist 33%, 2 prósentum minna en fyrir mánuði. Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 70% kjósenda.
Fylgi VG mælist nú 17%, Framsóknarflokksins 8% og Frjálslynda flokksins 5%. Fylgi Íslandshreyfingarinnar mælist varla.”
Athygli vekur þó að fylgi Samfylkingar minnkar um 2% á einum mánuði. Bendir það hugsanlega til þess að kjósendur vænti þess að Samfylkingin “geri eitthvað”.
Miðað við 2% fylgistap á mánuði geta dagpeningatúrar Samfylkingarinnar haldið áfram í 16 mánuði til viðbótar.
Myndin er af Sókratesi þegar hann átti 16 mánuði eftir ólifaða. Takið eftir hvað hann var brattur að sjá.
ATH: ÞEGAR þetta var skrifað var einkaþotutímabil Ingibjargar ekki hafið, og útreikningar um að fylgi Samfylkingarinnar dygði fyrir venjulegum dagpeningatúrum í 16 mánuði reiknað samkvæmt þeim tölum sem þá lágu fyrir. Mjög óljósar einkaþotuupplýsingar er hægt að nálgast í augnablikinu og hljóta því framtíðarspár um hversu lengi fylgi Samfylkingarinnar endist úr þessu að vera óljósar samkvæmt því.


















