Um hvítasunnuhelgina verður spennandi að fylgjast með því hvort Heilagur Andi kemur yfir DV og sá ágæti fjölmiðill biðji ríkislögreglustjóra afsökunar á því að hafa sagt að Sjónvarpið hafi verið á staðnum þegar Jón Ásgeir kom ekki til landsins svo að ekki var hægt að handtaka hann.
Dagbækur Sjónvarpsins ku staðfesta að Sjónvarpið hafi ekki verið á staðnum þegar Jón Ásgeir kom ekki til Keflavíkur.
Þaðan af síður mun Sjónvarpið hafa tekið myndir af því þegar þessi atburður átti sér ekki stað.
2 ummæli:
Frábær hugleiðing - og þarna ertu kominn með frábært efni í næstu söguna þína; ekki-glæpinn og allt sem gerðist ekki í tengslum við hann! Kveðja,
Ég held að svona uppákomur séu kallaðar "cover-up" á máli þeirrar þjóðar sem er leiðandi á þessu sviði.
Glæpasögurnar mínar eru allar um hluti sem "gerðust ekki en gætu hafa gerst" eins og ég lýsi þeim.
Í bókunum mínum heitir ríkislögreglustjóri af tilviljun Elín og það mundi vefjast fyrir mér að útskýra hvaða tengsl væru milli hennar og fréttastjóra Rúv OHF.
Skrifa ummæli